1Fyrst Kristur veitir kjark, fyrst kærleikur hans uppörvar, fyrst andi hans skapar samfélag, fyrst þar ríkir hlýja og samúð 2gerið þá gleði mína fullkomna með því að vera einhuga, hafa sama kærleika, einn hug og eina sál. 3Gerið ekkert af eigingirni eða hégómagirnd. Verið lítillát og metið hvert annað meira en ykkur sjálf. 4Lítið ekki aðeins á eigin hag heldur einnig annarra. 5Verið með sama hugarfari sem Kristur Jesús var. 6Hann var í Guðs mynd. En hann fór ekki með það sem feng sinn að vera Guði líkur. 7Hann svipti sig öllu, tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur. Hann kom fram sem maður, 8lægði sjálfan sig og varð hlýðinn allt til dauða, já, dauðans á krossi. 9Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið, sem hverju nafni er æðra, 10til þess að fyrir nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni, jörðu og undir jörðu 11og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar: Jesús Kristur er Drottinn.
Filipíbréfið 2.kafli.
Kæru vinir , það er oft erfitt að hafa slíkt hugarfar sem Kristur, ekki síst þegar á móti blæs. En þá er gott að hafa í huga að okkur var aldrei ætlað að gera það í eigin mætti. Kristur bauð okkur að koma til sín með allar byrðar og tjá okkur um vandamál okkar, sorgir sem gleði. Munum að Kristur fór ekki hátt með tignarhlutverk sitt, nei hann flaggaði engum orðum eða titlum sem ganga í augun á fólki. En hann vissi hver hann var og hverjum hann tilheyrði. Það er meginmálið, ef við vitum hvar við stöndum, hverjum við tilheyrum þá á þetta ekki að vera flókið. Börn sem eiga umhyggjusama foreldra leita hiklaust til þeirra með hvað eina sem upp á kemur og ekkert er sjálfsagðara. Okkur er sagt í Guðs orði að fyrst við sem ófullkomin mannanna börn getum gert vel við okkar eigin afkvæmi hví skildi ekki Faðirinn á himnum miklu fremur annast um þarfir okkar eftir himneskri visku sinni, sem er okkur fyrir bestu þegar allt er skoðað og gert upp. Það segir svo í Lúkas 11. 11 til 13:
11Er nokkur sá faðir yðar á meðal sem gæfi barni sínu höggorm ef það biður um fisk 12eða sporðdreka ef það biður um egg? 13Fyrst þér, sem eruð vondir, hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hve miklu fremur mun þá faðirinn himneski gefa þeim heilagan anda sem biðja hann.“
Guð gefi ykkur visku til að leita til hans sem elskar okkur skilyrðislaust og þráir að við komum til hans með allt okkar líf. Guð blessi þig sem þetta lest.


