Næstu tvo hvíldardaga mun Dr Steinþór Þórðarson predika í Boðunarkirkjunni. Þau eru ekki ófá námskeiðin sem Steinþór hefur haldið í gegnum árin, meðal annars um opinberunarbókina og Daníelsbókarnámskeið, ásamt miklu fleirum námskeiðum. Þessi námskeið voru svo hljóðrituð fyrir Útvarp Boðun og njóta nú hlustendur góðs af þeirri fræðslu. Samkoman byrjar kl: 11 fh á laugardeginum þ.e hvíldardegi Drottins og allir eru hjartanlega velkomnir. Barnastarfið er á sínum stað og er á meðan ræðan og biblíulexía er. Eftir samkomuna verður sameiginleg máltíð sem safnaðarsystkyni sjá um að framreiða á. Látum okkur ekki vanta á samkomu eða eins og segir í Hebreabréfinu 10:25
25Vanrækið ekki safnaðarsamkomur yðar eins og sumra er siður, heldur uppörvið hver annan, og það því fremur sem þér sjáið að dagurinn færist nær.








