Jesaja 54:10
10Því að þótt fjöllin bifist
og hæðirnar haggist
mun kærleikur minn til þín ekki bifast
og friðarsáttmáli minn ekki haggast,
segir Drottinn sem miskunnar þér.
Mundu að Guð elskar þig skilyrðislaust og þú þarft ekkert að gera til þess að hann elski
þig meira en hann gerir nú þegar.
Einfaldasta leiðin er að rækta vináttusambandið við Guð á hverjum degi og það gefur
þér þann kraft og frið sem þú þarfnast á hverjum degi, í öllum kringumstæðum.


