Spurt og svarað

Boðunarkirkjan

Spurt og svarað
Post: 28. janúar 2012 by: Dr. Steinþór Þórðarson

Spurt:
Er trú og tilfinning eitt og hið sama?

Svar:
Trú og tilfinning

Þeirri spurningu hefur verið varpað fram, hvort trú og tilfinning sé eitt og hið sama. Þessu er fljótsvarað af minni hálfu. "Nei, það getur verið mikill mismunur á þessu tvennu. Trú og tilfinning eru tvö mismunandi fyrirbæri sem ekki má rugla saman sem væri þau eitt og hið sama. Þó vil ég nefna það hér strax, að tilfinning getur verið hluti af trúarreynslu manna, en þó má tilfinning aldrei koma í staðinn fyrir sanna og réttláta trú. Þetta skulum við skoða nánar í ljósi Heilagrar ritningar.

Látum Orð Guðs segja okkur hvað felist í trúnni, hvað hún sé, og hvernig hún lýsi sér. Við byrjum á því að lesa í

Hebreabréfi 11:1-6

Post: 28. janúar 2012 by: Dr. Steinþór Þórðarson

Spurning: 
Hvað verður um sálina þegar menn deyja?

Svar: 
Meira um andatrú

Þeir sem kynna sér allt það sem Guð hefur að segja okkur mönnunum um ástand manna í dauðanum, hafa komist að raun um þá staðreynd að dánir sofa meðvitundarlausum svefni þar til að upprisu til lífsins kemur. Þangað til, eins og segir í Prédikaranum 9.kafla, vita dánir ekkert af sér, enda er engin starfsemi, þekking né viska í dánarheimum. Þannig er meðvitundarleysi hinna dánu algjört þar til að upprisunni kemur, sem er stórkostlegur viðburður sem mun gerast þegar Jesús Kristur kemur aftur til jarðar innan skamms tíma. Þetta er boðskapur Biblíunnar og þar með er þetta sannleiksorð Drottins, enda segir hann aldrei neitt sem ekki er sannleikur.

Post: 28. janúar 2012 by: Dr. Steinþór Þórðarson

Spurning: 

Matt 15 - 24. Af hverju segist Kristur eingöngu vera sendur til týndra sauða af Israelsætt ?. Af þessum orðum hans gæti fólk ályktað að Kristur væri Israelsmanna og engra annara ?

Svar: 
Kristur kom sem Frelsari allra manna, ekki bara Gyðinga. Gyðingar höfðu verið sérstaklega kallaðir löngu áður í gegnum forföður þeirra Abraham, til að vera málpípa Guðs á meðal þjóðanna og áttu þannig að boða fagnaðarerindi öllum þjóðum. En Gyðingar brugðust Guði, einangruðu sig, og litu á sig sem hina útvöldu en fólk annarra þjóða ekki, þá hafði Guð gefið þeim tækifæri eftir tækifæri til að iðrast og taka upp þetta boðunarverk.

Post: 28. janúar 2012 by: Dr. Steinþór Þórðarson

Spurning
Hvað gerist þegar maður deyr. Hvernig er ástand hinna dánu. Lifa dánir þrátt fyrir dauðann?

Svar: 
Þetta eru ævagamlar spurningar sem hafa brunnið á vörum þeirra sem vilja vita hvað felist í því að deyja. Um þessar mundir er jafnvel enn meira spurt en venjulega, þar sem slíkar spurningar, og aðrar álíka knýjandi, hafa verið ræddar í fjölmiðlum að undanförnu. Fólk hefur þess vegna komið að máli við mig og beðið mig um að ræða þetta nánar í þáttum mínum hér í útvarpinu, og það skal ég gjöra með ánægju, og þá að sjálfsögðu á grundvelli þess sem Guð hefur að segja okkur um málið í Orði sínu, Biblíunni.

Reykjavík Sólarupprás - Sólsetur

maí 18 maí 11
Sólarupprás: 03:54 04:17
Sólsetur: 22:50 22:27
Dagur lengd breyting : + 0 : 46 klst:mín
 

Hafa samband

Þú ert hér: Fræðsluefni Spurt og svarað