eftir dr. Steinþór Þórðarson : Langflestir í kristinni trú líta á sunnudaginn sem minningardag um upprisu Jesú Krists frá dauðum. Það er allt gott um þetta að segja og ekkert rangt við að hugsa til þess að Jesús dó fyrir okkur syndarana og reis síðan upp frá dauðum sem sigurvegari. En þegar við sjáum margendurteknar yfirlýsingar Guðs í Orði Hans um mikilvægi boðorða Hans, og þá ekki síst áherslu hans á að við munum eftir því að hafa í heiðri hinn vikulega hvíldardag Drottins, 7. daginn sem er laugardagurinn, þá komumst við að raun um, að menn hafa gleymt því sem Guð vildi alls ekki að við gleymdum.
Eftir: dr. Steinþór Þórðarson : Í Gamla testamentinu segir frá því þegar Drottinn bauð Ísraelsmönnum að skila tíund allra tekna sinna til Guðs málefnis. Og spyrjandi nokkur hefur komið þeirri hugsun á framfæri við mig, hvort þessi gjaldheimta hafi nú ekki aðeins átt við Ísraelsmenn til forna, og eigi alls ekki við í dag. Öðrum spyrjendum hefur fundist sem þetta sé aukin gjaldheimta, eins konar skattur, sem fólk hefur ekkert efni á að temja sér í dýrtíð nútímans. Enn aðrir vilja gjarnan fá að vita hvað Guð vilji að trúað fólk nú á dögum geri í sambandi við tíundina. Og svo er sígilda spurningin hvað sé gert við tíundina, þegar henni hefur verið skilað til safnaðarins.
eftir dr. Steinþór Þórðarson : Margir hafa komið að máli við okkur um tíðina og spurt hvað Drottinn hafi að segja um hreina og óhreina fæðu. Og hver skyldi vera ástæðan fyrir því að Guð gefi slíkar takmarkanir í fæðuvali? Allir kannast við mikilvægi góðra handbóka framleiðenda hinna ýmsu tækja og tóla nútímans. Eigandi bifreiðar, til dæmis, fer gaumgæfilega eftir handbók bifreiðarinnar til þess valda ekki skemmdum á henni. Nú hefur Guð gefið mönnum slíka handbók, það er Biblíuna, og þar í er að finna leiðbeiningar um skynsamlegt fæðuval. Hver kannast ekki við ofnæmi eða óþol af ýmsu tagi sem menn fá af fæðu? Það mun koma mörgum á óvart hve mikið er um slíkt af völdum fæðu þeirri sem Drottinn hefur sagt vera okkur óhrein og við skyldum ekki neyta. Það skyldi þó aldrei vera að Skaparinn sjálfur vissi hvað okkur er fyrir bestu. Getur nokkur annar haft slíka yfirsýn og
eftir dr. Steinþór Þórðarson : Jósúa, eftirmaður Móse sem leiðtogi Ísraelsmanna, var nú orðinn gamall maður og var um það bil að kveðja fyrir fullt og allt. Hann kallaði saman leiðtoga þjóðarinnar og ávarpaði þá með eftirtöldum orðum, sem við lesum í
Jósúa 24:14-15
-14- Óttist því Drottin og þjónið honum einlæglega og dyggilega, og kastið burt guðum þeim, er feður yðar þjónuðu fyrir handan Fljótið og í Egyptalandi, og þjónið Drottni. -15- En líki
eftir dr. Steinþór Þórðarson : Gerir þú þér grein fyrir því, að heimurinn , eins og hann er núna ,
mun enda fyrr eða síðar? Ertu undir það búin(n) að lesa það sem
Guð hefur að segja þér í Orði sínu varðandi svokölluð endalok?
„Bíddu nú við," segir þú ef til vill. „Er hér enn einn
eftir dr. Steinþór Þórðarson : Drottinn mælti svo fyrir að allir ættu að skírast.
Matteusarguðspjall 28:19-20
-19- Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, -20- og kennið þeim að halda allt það, sem ég hef boðið yður. Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.
eftir dr. Steinþór Þórðarson : Spádómar Opinberunarbókarinnar eru merkilegir að því leiti, hvernig boðskapur þeirra er klæddur í táknmál, sem mörgum hefur þótt erfitt að skilja, og jafnvel talið þessa bók óskiljanlega með öllu. En við þurfum að setja okkur inn í kringumstæður Jóhannesar, háaldraðs manns, sem var lærisveinn Jesú Krists, en sat sem fangi Rómverja á eynni Patmos í Gríska Eyjahafinu þegar hann skrifaði Opinberunarbókina.
Rómverjar vildu þagga niður í gamla manninum með því að geyma hann á afskekktri eyju svo að hann gæti ekki prédikað um Jesú Krist. En gamli maðurinn, sem nú var vel yfir
eftir dr. Steinþór Þórðarson : Allir, bæði karlar og konur, yngri sem eldri, hafa fyrr eða síðar hugleitt duðann. Eflaust vilja flestir vita hvað þetta fyrirbæri, sem kallast dauði, sé í raun og veru. Já, hvað er dauði? Hvað gerist þegar fólk deyr?
Það eru til svo margar hugmyndir og útskýringar og fullyrðingar varðandi dauðann, að flestir skilja hvorki upp né niður í þessu fyrirbæri. Margir óttast dauðann, ef til vill einmitt vegna óvissunnar sem virðist hvíla yfir framhaldinu eftir dauðann, ef hægt er að tala um framhald.
eftir dr. Steinþór Þórðarson : Hvaða kirkja, söfnuður eða samfélag er söfnuður Guðs? Hvernig í ósköpunum á maður að geta vita hverjir það eru sem virkilega boða sannleikann? Þannig spyrja margir, enda eru þeir margir í dag sem leita sannleikans, og þá um leið leita að fólki Guðs. Fólki er í rauninni vorkunn að vera eitthvað efablandin í þessu efni, þar sem svo margir söfnuðir og trúarsamfélög segjast kenna aðeins það sem er satt og rétt, en fólk þarf ekki að hafa mikið fyrir því að sjá, að ekki geta þeir allir boða sannleika Guðs, þegar þeir kenna oft andstæðar kenningar.
eftir dr. Steinþór Þórðarson : Eru englarnir dáið fólk?
Verða þeir sem deyja að englum í ríki Guðs?
Hverjir eru englarnir? Hvers konar verur eru englar Guðs?
Þessu svara ég svona.
eftir dr. Steinþór Þórðarson : Jesús Kristur lofaði að koma aftur til þess að sækja okkur og til að gefa okkur glæsileg heimkynni sem við megum njóta um alla eilífð.
Jóhannesarguðspjall 14:1-3
-1- Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig. -2- Í húsi föður míns eru margar vistarverur. Væri ekki svo, hefði ég þá sagt yður, að ég færi burt að búa yður stað? -3- Þegar ég er farinn burt og hef búið yður stað, kem ég aftur og tek yður til mín, svo að þér séuð einnig þar sem ég er.
eftir dr. Steinþór Þórðarson : Margir hafa séð til og fylgst með, a.m.k. úr fjarlægð ef ekki úr nálægð, svokölluðu kraftaverkafólki, er prédikar af miklum móð og hvetur fólk til að koma til sín í von um lækningu meina sinna. Ef til vill hefur mest borið á slíkum kraftaverkaprédikurum í Bandaríkjunum, enda hefur talsvert farið fyrir slíkum í sjónvarpi þar vestra.
Sumir hafa komið upp heilmiklu fjármálaveldi sem veltir hundruðum milljóna og stundum milljörðum króna á ári. Yfirleitt er þarna um gjafafé að ræða, sem fólk gefur viðkomandi kraftaverkaprédikurum, sem eru ýmist karlar eða konur. Oft er mikið um glans og skraut af ýmsu tagi á slíkum samkomum og mikil áhersla lögð á að nýta tæknina til hins ýtrasta til að ná til fólks og til að hafa áhrif á tilfinningar þess.
eftir dr. Steinþór Þórðarson : Viltu segja mér, Steinþór, hvað Biblían hefur að segja um helvíti? Er helvíti raunverulegur staður? Og ef svo er, hvernig getur kærleiksríkur Guð fengið af sér að refsa mönnum um alla eilífð fyrir fáein ár í synd hér á jörðu? Þannig spurningar eru algengar, enda er ég sjálfur oft spurður á þennan hátt.
Mér er það mikil ánægja að aðstoða áheyrendur mina við að finna svörin við slíkum spurningum í sjálfri Biblíunni, sem er Orð Guðs. Þar hefur Guð heilmikið að segja um þetta mál, og það er einfaldlega alls ekki eins og margir halda. Og til að gera langt mál miklu styttra, leyfi ég mér að fullyrða það hér og nú, að Guð mun alls ekki láta syndara brenna í eldi um alla eilífð, enda verður ekkert helvíti til um alla eilífð.
eftir dr. Steinþór Þórðarson : Margir hafa lesið í Biblíunni það sem Guð hefur þar að segja okkur um eitthvert 1000 ára tímabil sem verður í framtíðinni. Margir telja að þarna sé átt við gullaldar tímabil, þar sem öllum líður vel og gott verður að búa þá á jörðinni við frið og velsæld. Og það er einmitt þess vegna sem sumir kalla þetta þúsunda ára ríki Drottins. En þegar farið er að lesa allt sem Biblían hefur að segja um þessi 1000 ár sem geta byrjað áður en mjög langt um líður í tímatali spádóma Biblíunnar, þá kemur allt annað í ljós.
Að þessu sinni munum við skoða ákaflega merkilega spádóma Biblíunnar um þessi 1000 ár, og af reynslu minni af því að lesa Biblíuna í nokkra áratugi, þá er ég viss um að margir hlustendur eigi eftir að verða hissa þegar þeir komast að raun um hið sanna í þessu efni.
eftir dr. Steinþór Þórðarson : Hvíldardagurinn var innleiddur við sköpun heimsins. Síðasta verk Guðs í sköpuninni var að gjöra okkur helgidóm í tímanum sem okkur er ætlað að nota til samfélags við Guð og menn. Hvíldardagurinn byrjar við sólsetur á föstudegi, sem er 6. dagur vikunnar, og endar við sólsetur á laugardegi, 7. degi vikunnar. Þessi tími er sérstaklega blessaður og helgaður af Guði sjálfum.
Ef sumum finnst sem þetta með hvíldardaginn sé gamall og úreltur boðskapur, hvet ég slíka til að kynna sér eftirfarandi hvatningu Drottins Guðs til allra jarðarbúa. En þetta er sérstakur boðskapur Guðs til okkar sem lifum á síðustu tímum mannkynssögunnar. Við lesum nú í
e
ftir dr. Steinþór Þórðarson : Íslenska lögreglan á sér kjörorð sem margir kunna utan bókar og hljómar á þessa leið: "Með lögum skal land byggja." Almennt er fólk löghlýðnir borgarar, enda komin löng og góð reynsla af góðum lögum og almennum reglum um siðferði borgaranna. Hvernig skyldi ástandið vera hér á landi ef við nytum ekki þeirrar verndar sem íslenska stjórnarskráin veitir okkur? Oft berast fréttir erlendis frá um uppþot og óeirðir, þar sem verslanir eru rændar og brenndar, og öllu steini léttara er stolið. Stundum gerist það, að fólk í þúsunda tali er líflátið hvar sem til þess næst, eins og gerðist t.d. í Afríkuríkinu Rúanda og í fyrrum Júgóslavíu fyrir fáeinum árum. Okkur finnst gott að búa á Íslandi fjarri slíku lögleysi og ringulreið, er það ekki?
eftir dr. Steinþór Þórðarson : 1. Mósebók 1:1
"Í upphafi skapaði Guð himin og jörð. " Með þessum orðum byrjar Biblían, Orð Guðs. Og næst síðasti kafli Biblíunnar fjallar um endursköpun, þ.e.a.s. þar er að finna yfirlýsingu Guðs um að skapa jörðina upp á nýtt. Þar segir þetta:
Opinberun Jóhannesar 21:1-5
-1- Og ég sá nýjan himin og nýja jörð, því að hinn fyrri himinn og hin fyrri jörð voru horfin og hafið er ekki framar til. -2- Og ég sá borgina helgu, nýja Jerúsalem, stíga niður af himni frá Guði, búna sem brúði, er skartar fyrir manni sínum. -3- Og ég heyrði raust mikla frá hásætinu, er sagði: Sjá, tjaldbúð Guðs er meðal mannanna og hann mun búa hjá þeim, og þeir munu vera fólk hans og Guð sjálfur mun vera hjá þeim, Guð þeirra. -4- Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til. Hið fyrra er farið. -5- Og sá, sem í hásætinu sat, sagði: Sjá, ég gjöri alla hluti nýja, og hann segir: Rita þú, því að þetta eru orðin trúu og sönnu.
Allt þar á milli, á milli þessara tveggja yfirlýsinga um sköpun, er mikið fjallað um Skaparann og sköpunarmátt hans í allri Biblíunni.
Trúir þú sköpunarsögu Biblíunnar? Ef ekki, ertu þá kristinnar trúar? Svarir þú síðari spurningunni játandi, þá hefur þú opinberað alvarlega mótsögn í trúarjátningu þinni. Hvernig má það vera? Jú, þú segist trúa á Jesú Krist sem frelsara þinn, en afneitar sköpunarsögunni og þar með Skaparanum, sem er einmitt Jesús Kristur. Þú getur ekki bæði trúað á Jesú krist og afneitað Skaparanum í sömu andránni, þar sem Kristur og Skaparinn eru ein og sama persónan!
eftir dr. Steinþór Þórðarson : Útbreiddasta bók allra tíma er Biblían, sem margir kalla Orð Guðs, enda eru ritningarnar oft nefndar Orð Guðs í sjálfri Biblíunni.
Flestir Íslendingar, sem almennt telja sig til kristinnar trúar, eiga eintak af Biblíunni. En af reynslu minni í fjóra ártugi við að kenna fólki að skilja þessa merkilegu bók, þá get ég fullyrt að Íslendingar gera ekki mikið af því að lesa Biblíuna.
Oft er Biblíuna að finna í Bókahillum landsmanna, ef ekki rykfallna, þá að minnsta kosti óopnaða í mörgum tilfellum, og það árum og áratugum saman. Hvernig skal standa á því að svo margir þeirra sem játa trú sína á Jesú Kristi, söguhetju Biblíunnar, lesa hana svo lítið eða jafnvel alls ekkert? Er það vegna þess að þeir skilja hana ekki, eða telja hana torskilda? Líklega er það tilfellið hjá mörgum.
En nú er Biblían að miklu leiti auðskilin bók er bíður þess að veita öllum þeim blessun sem hafa fyrir því að gefa boðskap hennar gaum. Í þessum erindaflokki sem ég kalla Prófsteina, mun ég leitast við að auðvelda þeim er á þessi orð hlýða, að skilja Orð Guðs. Gef þér tíma til að fylgjast með þegar við skoðum svör Biblíunnar við mörgum spurningum sem brenna á vörum folks. Þá munt þú komast að raun um það að Biblían er í rauninni leiðbeiningabók Guðs fyrir alla sem vilja treysta honum og læra að taka mark á boðskap Biblíunnar.
Biblían er undursamleg bók sem opnar nýjan skilning manna á ráðsályktunum Guðs, áformum hans með okkur mennina, og hjálpar fólki að skilja spádóma Biblíunnar um stórbrotna atburði mannkynssögunnar sem hafa ræst og eru um það bil að uppfyllast. Í komandi erindum mínum mun ég sýna þér hvað Orð Guðs hefur að segja okkur um algengustu spurningar lífsins, eins og t.d Hvaðan komum við? Hvers vegna erum við hérna? Og hvert förum við héðan?
eftir dr. Steinþór Þórðarson : Margir, jafnvel á meðal þeirra sem játa kristna trú, telja að Jesús Kristur hafi fyrst komið til sögunnar þegar hann fæddist í Betlehem fyrir nær 2000 árum. En Biblían hefur mikið að segja um eilífðartilvist Jesú Krists. Að hann hafi alltaf verið til og muni alltaf ríkja sem Drottinn almáttugur og eilífðarkonungur í alheimsríki sínu.
Biblían hefur að geyma margvíslegt efni sem er hrífandi rannsóknarefni, en að mínu mati er ekkert stórbrotnara og meira spennandi en einmitt persónan Jesús Kristur og allt sem honum viðkemur. Að þessu sinni mun ég sýna fram á sumt af því sem Biblían segir okkur um guðdóm Jesú Krists og eilífðartilvist hans.
Jóh 17:5

eftir dr. Steinþór Þórðarson : Það eru meira en 1500 spádómar í Biblíunni þess efnis að Kristur muni koma aftur til jarðar. Fyrir hvern einn spádóm Biblíunnar um að Kristur komi í fyrra sinnið (sem barn í Betlehem), er að finna átta spádóma um komu hans í annað sinni. Endurkoma Jesú Krists er að meðaltali nefnd í fimmta hverju versi í Nýja Testamenntinu.
Ef til vill er ein yfirlýsing Jesú Krists um komu hans aftur til jarðar betur þekkt en aðrar. Hér á ég við eftirfarandi orð hans í
Jóh 14:1-3
-1- Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig. -2- Í húsi föður míns eru margar vistarverur. Væri ekki svo, hefði ég þá sagt yður, að ég færi burt að búa yður stað? -3- Þegar ég er farinn burt og hef búið yður stað, kem ég aftur og tek yður til mín, svo að þér séuð einnig þar sem ég er.


