Um okkur | Boðunarkirkjan

Boðunarkirkjan

Um okkur

  • Skoða sem PDF skjal

Tilskipun Drottins

"Og Jesús gekk til þeirra, talaði við þá og sagði: Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið því og gjörið alla þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilagas anda, og kennið þeim að halda allt það, sem ég hef boðið yður. sjá, ég er með yður allt til enda veraldar."

Sbr.Matt 28:18-20 /Sbr Opb 14:6-12

Markmið

Mesta knýjandi verkefni er að gefa íslensku þjóðinni tækifæri á að kynnast boðskap Biblíunnar, sem segir frá kærleiksríkum Guði, dásamlegum frelsara, Jesú Kristi, og leiðsögn Heilags anda.

Post 26:18-18

-18- að opna augu þeirra og snúa þeim frá myrkri til ljóss, frá Satans valdi til Guðs, svo að þeir öðlist fyrir trú á mig fyrirgefningu syndanna og arf með þeim, sem helgaðir eru.

Þessu trúum við

Við trúum á kærleiksríkan, almáttugan Guð sem skapaði heiminn og mannkynið. Við trúum á Jesú Krist, son Guðs, sem dó til að friðþægja fyrir syndir mannanna. Við trúum á heilagan anda og meðtökum leiðsögn hans til iðrunar og réttlætis. Við meðtökum alla Biblíuna sem heilagt, innblásið Orð Guðs og grundvöll trúar og lífernis. Við meðtökum boðorðin tíu sem eilífar meginreglur Guðs, sem Jesús Kristur mun uppfylla í lífi okkar. Við trúum því að Drottinn Jesús Kristur dæmi lifendur og dauða og komi síðan aftur að vitja síns fólks. Við trúum á upprisu dauðra og eilíft líf.

1Jóh 1

-9- Ef vér játum syndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti.

Barnastarfið

Er fyrir börn á aldrinum 3 til 12 ára. (æskilegt er að börn yngri en 3 ára séu í fylgd með foreldrum sínum) Þarna fer fram biblíufræðsla, sungið, föndrað og leikið

Ungmennastarfið

 

Er fyrir ungt fólk á aldrinum 13  til 18 ára. Við komum saman alla laugardaga á hvíldardegi Drottins, þar sem við fáum fræðslu við okkar hæfi, syngjum og spjöllum saman

 

Magnea Sturludóttir formaður safnaðarstjórnar
Magnea Sturludóttir 
Húsmóðir

Formaður safnaðarstjórnar,
hún starfar einnig við útvarp Boðun

Netfang : Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Ingólfur Árnason  fjármálastjóri Boðunarkirkjunnar
Ingólfur Árnason
Viðskiptafræðingur

Fjármálastjóri Boðunarkirkjunnar,
hann starfar einnig við útvarp Boðun

Netfang : Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Þórdís Malmquist  ritari í stjórn Boðunarkirkjunnar
Þórdís Malmquist 
Félagsliði

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Guðrún Valdimarsdóttir
Guðrún Valdimarsdóttir 
Sjúkraliði

 Ritari í útvarpsráði  útvarps Boðunar


Guný Sigfúsdóttir

Guðný Sigfúsdóttir 
Þroskaþjálfi

Starfar við  útvarp Boðun


Stefán Kristjánsson
Stefán Kristjánsson   
Bifreiðastjóri



 

Útvarpsráð 
Formaður: Ingólfur Árnason
Ritari: Guðrú Valdimarsdóttir
Hörður Gestsson.

Reykjavík Sólarupprás - Sólsetur

maí 18 maí 11
Sólarupprás: 03:54 04:17
Sólsetur: 22:50 22:27
Dagur lengd breyting : + 0 : 46 klst:mín
 

Hafa samband

Þú ert hér: Um okkur