Samkomur
Alla laugardaga kl 11:00 til ca 12:30 á hvíldardegi Drottins komum við saman til þess að lofa Drottinn bæði í tali og tónum, eins og segir í sálmi 149:1 „Hallelúja. Syngið Drottni nýjan söng, lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúaðra“. Einnig er predikun og að henni lokinni er biblíufræðsla þar sem fyrirfram ákveðið efni er tekið fyrir og skoðað og rannsakað nánar. Öll börn og unglingar eru hjartanlega velkomin á samkomur,þar sem boðið er upp á dagskrá fyrir hvern aldurshóp fyrir sig. Þar fá börnin biblíufræðslu , syngja,föndra og leika sér, allt eftir því hvað hentar best hverjum aldurshópi. Þetta fer fram í sérstökum deildum á meðan foreldrarnir eru í guðþjónustunni og biblíufræðslunni í aðalsalnum.
Að lokinni samkomu þar sem við höfum fengið að njóta andlegrar næringar er einnig boðið upp á veitingar og þá njótum við þess að setjast niður, spjalla og kynnast hvort öðru betur. Allt safnaðar-starfið er rekið með frjálsum framlögum, veitingarnar eru því framlag safnaðarsystkina og er hverjum og einum velkomið að taka þátt í þeim kostnaði með frjálsum framlögum.






