Forstöðumaður | Boðunarkirkjan

Boðunarkirkjan

Forstöðumaður

  • Skoða sem PDF skjal

 

Nokkur orð til þín....

 

Öll erum við að leita að einhverju í lífinu, í raun vitum við oft á tíðum ekki hvað það er en í öllum tilfellum hér leyfi ég mér að fullyrða Magnea Sturludóttir Forstöðumaður Boðunarkirkjunar

erum við öll að leita að því sama en það er að hamingju, því hver vill ekki vera hamingjusamur?

Jafnvel ungir krakkar í dag eru að leita að hamingjunni, ekki svo að skilja að það hafi aldrei verið áður en því miður eru börnin yngri og yngri sem finna fyrir óhamingju og sársauka í lífinu og þar sem þau vita ekki hvernig þau eiga að takast á við líðan sína að þá í vanmætti sínum leiðast þau út á brautir sem eru því miður ekki æskilegar fyrir nokkurn mann.

Leitin að hamingjunni getur verið þrautarganga og ýmislegt er gert til þess að fylla upp í þann tómleika sem myndast hefur í brjósti einstaklingsins meðal annars með mat,áfengi,eiturlyfjum, kaup á dýrum hlutum, og með mikilli vinnu, listinn er mun lengri. Margir eiga slíka sögu, en það eru líka til einstaklingar sem fara ekki þessa leið heldur koma sér í nám, fá síðan góða vinnu, eignast fjölskyldu og allt virðist vera svo gott í lífinu. En þrátt fyrir allt sem þær/þeir eiga er það alltaf eitthvað sem vantar upp á og þeir upplifa tómleika innra með sér ....

Allir eiga sína sögu, í Boðunarkirkjunni er slíkt fólk að finna, fólk sem kemur úr ýmsum stigum þjóðfélagsins, fjölskyldufólk og einstaklingar en það er fólk sem þráði eitthvað annað og betra en það sem heimurinn gat boðið upp á. Fólk sem hóf leitina að lífsfyllingunni og hætti ekki þeirri leit fyrr en það fann svör.

Jesús sagði eftirfarandi orð og við finnum þau í Jóh 10:9,10 Ég er dyrnar. Sá sem kemur inn um mig, mun frelsast, og hann mun ganga inn og út og finna haga...... Ég er kominn til þess, að þeir hafi líf, líf í fullri gnægð. Að eiga líf og von í Jesú Kristi er það sem sameinar okkur í Boðunarkirkjunni. Að eiga andlegt heimili þar sem við komum saman með öðrum trúuðum einnstaklingum til þess að biðja, syngja, þakka og lofa Guð fyrir allar hans velgjörðir og blessanir.

Í Matteusi 7 kafla, versi 7og 8 hvetur Jesús einn og sérhvern til þess að:

Biðjið, og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða. Því hver sá öðlast, sem biður, sá finnur, sem leitar, og fyrir þeim, sem á knýr, mun upp lokið verða.

Þetta eru stórkostleg loforð sem Jesús gefur hér, að ef þú biður hann að þá mun hann gefa þér, að ef þú leitar hans að þá munt þú finna hann, og ef þú knýrð á dyr hans að þá mun hann opna fyrir þér! Þannig er okkar kærleiksríki Jesús, hann skilur engan eftir eina/n sem leitar til hans. Það skiptir ekki máli hvort að þú sért rík/ur eða fátæk/ur, ung/ur eða gömul/gamall þegar að þú leitar til Drottins, því allir fá áheyrn sem sækjast eftir því.

Ég bið þess að Guð megi blessa og varðveita þig á þinni göngu í gegnum lífið, en ég bið þess einnig að þú takir hvatningu Drottins og leitir hans af öllu hjarta og sláist þannig í hóp þeirra manna,kvenna og barna ekki bara í Boðunarkirkjunni heldur um allan heim sem hafa fundið þann kærleika, hamingju og von í frelsara sínum Jesú Kristi.

Með kærleikskveðju til þín

Magnea Sturludóttir

Reykjavík Sólarupprás - Sólsetur

maí 18 maí 11
Sólarupprás: 03:54 04:17
Sólsetur: 22:50 22:27
Dagur lengd breyting : + 0 : 46 klst:mín
 

Hafa samband

Þú ert hér: Um okkur Forstöðumaður