|
Útvarps
dagskráin
FM 105,5 á Reykjavíkursvæðinu og FM
104,9 á Akureyri.
Boðunarkirkjan hefur rekið útvarpsstöð frá því 1.
September 2001, sem boðar Orð Guðs og dregur ekkert
undan. En í útvarpinu eru fluttir úrvalsþættir og ljúf
tónlist allan sólarhringinn. Lifandi hugvekjur, úrvals
ljóð, athyglisverðir þættir og námskeið um ýmis efni
Biblíunnar. Svo eru barnastundir sem
börnin
vilja alls
ekki missa af. Á næstunni verður allt gamalt efni sett
inn á heimasíðuna og jafnframt nýtt, bæði sem
hljóðskrá og á rituðu máli.
Kynning á dagskrárliðum!
Við viljum vekja sérstaka athygli á föstum dagskrárlið
alla daga sem heitir
„Biblían boðar”.
Þar eru teknir fyrir jöfnum höndum
„Prófsteinar
Biblíunnar” , spurningar frá hlustendum og svör við
þeim auk annarrar Biblíufræðslu eftir því sem við á.
Þátturinn er á dagskrá kl 10 árdegis og er síðan
endurtekinn kl. 14 síðdegis og kl. 22 að kveldi .
Einnig
kl. 02 og 06 eftir miðnætti hvern sólarhring
|